Til baka
Í 70 ár hefur Kay Bojesen skapað líf og gleði á heimilum víða um heim. Í tilefni af 70 ára afmælinu er nú kynnt til leiks hátíðarútgáfa af apanum sívinsæla. Hátíðarapinn var hannaður með einn tilgang í huga - að nota efniviðinn af ábyrgð og umhyggju. Apinn er því framleiddur úr við sem fellur til á verkstæðinu sem ella hefði verið sóað.
Hátíðarútgáfan er með 70 ára afmælismerki á fætinum og kemur hún í sérstökum hátíðarkassa úr viði árið 2021.
Kay Bojesen var silfursmiður sem að lærði á verkstæði Georg Jensen í Kaupmannahöfn. Eftir að hafa starfað við greinina í nokkur ár í Þýskalandi og Frakklandi ákvað hann að breyta til og fór að vinna með tré. Hann er í dag einn af allra þekktustu hönnuðum sem Danir hafa alið af sér og þá einkum fyrir tréfígúrur sínar sem margir þekkja. Kay sagði eitt sinn að dýrin sín ættu ekki að líkjast alvöru dýrum, heldur að fá frelsi til að vera þau sjálf og hafa sinn eigin karakteríska persónuleika. Rosendahl keypti framleiðsluréttinn af Kay Bojsen vörunum árið 1990.

Apinn var annar í röðinni af dýrunum sem Kay Boysen smíðaði á eftir hundinum, en í kjölfarið komu björninn og fíllinn.
Hönnun: Kay Bojesen, 1951
Hæð: 26cm
Breidd: 7,5cm